|
||||
|
|||||||||||||||
|
Er Samfylkingin flokkur mannsins? Sigurjón Sveinsson - Mánudagur 3. desember 2001 Ég hef verið að spá mikið í það hvaða stjórnmálaflokkur höfðar til mín og álpaðist til að íhuga samfylkinguna, fór reyndar inn á þær slóðir nokkrum sinnum. En í hvert sinn sem ég byrja að skoða Samfylkinguna verð ég afhuga henni út af grundvallaratriðum sem eru tíundaðar hér fyrir neðan. Fyrst ber að nefna mál varaformanns íslenskra Þjóðernissinna. Þegar þau samtök komu fyrst fram í dagsljósið kom ein af þingkonum Samfylkingarinnar fram í fréttum (eitt og hálft ár síðan) og sagði Samfylkinguna vera tilbúna að banna svona hópa með lögum, svona skoðanir. Að neita okkur borgurum um þann rétt okkar að mynda okkar skoðanir sjálf. Það heyrðist svo ekkert meira um þetta frá þessari blessaðri konu. Henni hefur sennilega verið sagt að hafa ekki hátt um þetta í fjölmiðlum. Ég hélt að þarna hefði verið um einangrað dæmi að ræða, að blessuð konan væri ein um það að vilja banna lýðræði í landinu. En nei, ekki aldeilis. Hlynur var dæmdur í héraði fyrir ummæli sín í DV. Það fór að sjálfsögðu styr um þjóðfélagið eftir þetta því skv. dóminum má ekki segja skoðun sína, þ.e. ef hún fellur ekki að pólitískri rétthugsun. í Kastljósinu helgina eftir var fjallað um þetta mál. Þar komu fram Örn Clausen, hdl. og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingkona Samfylkingarinnar. Ok, þau voru ekki á sama máli að hvaða leyti þessi dómur skerti stjórnarskrárbundin réttindi um tjáningar- og málfrelsi. Ok, allt í lagi með það. En Þórunn Sveinbjarnardóttir sagði svolítið sem gerði mig mjög reiðan og kom 90% í veg fyrir að ég myndi nokkurn tíma taka mark á Samfylkingunni. Þórunn sagði að það hefði verið grundvallaratriði hver Hlynur væri. Hún var þarna að meina að hann væri talsmaður öfgahóps og þar af leiðandi ætti hann ekki að njóta verndar stjórnarskrár Íslands um borgaraleg réttindi! Má þá ekki segja það líka að íslendingur sem vinnur verkamannavinnu á að fara í fangelsi fyrir kynferðislega misnotkun á börnum en háskólaprófessor á að sýkna fyrir sama brot, vegna þess hver hann er? Sem sagt, Samfylkingin er komin á sama stig og svínin í bókinni Animal Farm eftir George Orwell. Allir Íslendingar eru jafnir en sumir Íslendingar mega ekki vera jafnir hinum vegna skoðanna sinna.
Kynjakvótar hafa verið notaðir í jafnréttisbaráttunni til að auka hlut kvenna í nefndum, störfum og á þingi. Til dæmis í Frakklandi verða að vera jafn margar konur og karlar á kjörlista í sveitarstjórnarkostningum ef kjördæmið hefur fleirri en 1500 íbúa. En hvað er kynjakvóti? Ég er þeirrar skoðunnar að þetta séu mikil mistök fólks sem er blindað af ljósi jafnréttis. Þetta eru ekki jafnréttindi heldur sérréttindi á kostnað lýðræðis, og að mínu mati, á kostnað kvenna. Konur þurfa, samkvæmt þessum kynjakvóta, ekki að standa sig til að komast að. Það dugar að vera kona. Það er því minni þörf á því fyrir Samfylkingarkonur að verðskulda kostningar jafningja á landsfundi. Ég vill meina það að ef ég væri kona myndi ég skammast sín
fyrir að komast að á þennan hátt. Með kynjakvóta er það ekki lengur manneskjan
sjálf sem skiptir máli. Það skiptir ekki lengur máli hvaða menntun hún hefur.
Það skiptir ekki heldur máli hvort manneskjan sé hæf eða verðskuldi stöðuna sem
hún kemst í. Það sem skiptir máli er hvers kyns hún er. Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir því að ég mun aldrei kjósa Samfylkinguna í þeirri mynd sem hún er í dag, fyrir utan það að mér finnst Össur Skarphéðinsson vera froðusnakkur og ekki sjálfum samkvæmur og að málefni Samfylkingarinnar stundum jaðra við rugl. Jón Baldvin Hannibalsson, það eru ekki til neinir sannir hægri kratar á þingi í dag. Það vantar menn eins og þig á þessari línu stjórnmála. Þig vantar á þing! |
| Sigurjón Sveinsson / 856 6423 / 561 4440 / sigurjons.blogspot.com si.tenmis@vsnojrugis |