<font color=red>aftur á forsíðu</font>

Jafnréttisbaráttan
Stjórnmál

 Tengdar greinar
Áfram Blátt áfram
Opið bréf til ritstjórnar Tíkarinnar
Um heimsókn Kínaforseta og tvískinnung stjórnvalda
Statistik og túlkun þess.
Um kynjakvóta og raunverulegt jafnrétti.
Et tu, Már!!
Er Samfylkingin flokkur mannsins?


Hekla hf
 
Audi er brúðarbíllinn í ár
 




Ingibjörg er fallin af stallinum!
Sigurjón Sveinsson - Mánudagur 30. desember 2002

Þessa daga er mikið rætt um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og aðgerðir hennar. Ég bendi bara á þessara greinar og lýsi mig sammála þeim öllum.
Kjarni málsins hjá Múrnum. Kjarni málsins hjá Andríkinu. Kjarni málsins hjá Deiglunni.com.

Kjarninn málsins með afsögn Ingibjarnar sem borgarstjóri er þessi, að mínu mati.
Hún sveik loforð, vísvitandi, sem á byggðist það traust sem samstarfsfólk annara flokka en Samfylkingarinnar hafði til hennar. Hún sveik einnig loforð til kjósenda sinna, sem treystu henni sem heiðursmanneskju og töldu sig ekki þurfa neitt annað en loforð hennar.
Nú er Ingibjörg, vegna dómgreindarleysis síns, búin að missa stöðu sína sem borgarstjóri, kemst sennilega ekki á þing og búin að eyðileggja það traust sem verður að ríkja á milli kjósenda og frambjóðenda annars vegar og samstarfsaðila á faglegum vettvangi, sem pólitík er, hins vegar.

Og það er sama hvað hún, Össur Skarphéðins eða annað Samfylkingarfólk kennir öðrum um hvernig fór, þetta pólitíska megaklúður Ingibjarnar skrifast á hennar eigin reikning og hvergi annars staðar. Og hann Össur Skarphéðinsson, froðusnakkur og lýðsskrumari með meiru, er líka ábyrgur fyrir einhverju af þessu.
Sayonara Ingibjörg, Adieu à jamais.